Nýstofnað kvikmyndaframleiðslufyrirtæki, ACT4, hefur tryggt sér fjármögnun frá hópi innlendra og erlendra fjárfesta, skv. tilkynningu sem skapar félaginu rekstrargrundvöll til næstu ára. Hann verður nýttur til að þróa og fjármagna framleiðslu á íslensku sjónvarpsefni fyrir alþjóðamarkað. Stofnendur ACT4 eru Hörður Rúnarsson, Ólafur Darri Ólafsson, Jónas Margeir Ingólfsson og Birkir Blær Ingólfsson. Hörður er framleiðandi og höfundur hjá ACT4 og hefur komið sem framleiðandi að verkefnum á borð við Venjulegt fólk. Ólafur Darri er þekktur leikari og hefur líka komið að handritaskrifum og framleiðslu. Hann vinnur héðan í frá undir merkjum ACT4 og hefur unnið með heimsþekktum leikstjórum. Ólafur Darri verður framleiðandi og höfundur hjá ACT4.
Jónas Margeir verður framkvæmdastjóri ACT4 en hann hefur starfað sem lögfræðingur og ráðgjafi við kvikmyndaverkefni, starfar sömuleiðis sem handritshöfundur og hefur m.a. komið að þáttunum Ráðherrann og Stellu Blómkvist 2. Birkir Blær er höfundur og þekktur fyrir sjónvarpsþætti á borð við Ísalög. Hann verður þróunarstjóri ACT4.
„Mér er sönn ánægja að tilkynna um stofnun og fjármögnun ACT4. Við ætlum okkur að framleiða vandað íslenskt sjónvarpsefni til sýningar hér og erlendis. Okkur er mjög umhugað um að vanda til verka, leitast við að ná fram gæðum og fagmennsku, bæði á skjánum og innan þeirra verkefna sem við tökum að okkur. Og á persónulegri nótum þá hlakka ég til að nýta þetta tækifæri til að styrkja tengslin sem ég hef myndað í störfum mínum á síðustu árum við magnaða listamenn og vonandi lokka þá til samstarfs hér á Íslandi,“ segir Ólafur Darri í tilkynningu. Segir í tilkynningunni að innan félagsins séu mörg spennandi verkefni í burðarliðnum sem verði kynnt á næstu vikum.