Down & Out Tvíeykið Ármann Guðmundsson og Þorgeir Tryggvason.
Down & Out Tvíeykið Ármann Guðmundsson og Þorgeir Tryggvason.
Dúettinn Down & Out fagnar útgáfu hljómplötu sinnar Þættir af einkennilegum mönnum sem nú er fáanlega á vínil og kassettu eftir 15 mánaða framleiðslumeðgöngu, að því er segir á Facebook-síðu tvíeykisins, og fer fögnuðurinn fram á Café Rosenberg kl

Dúettinn Down & Out fagnar útgáfu hljómplötu sinnar Þættir af einkennilegum mönnum sem nú er fáanlega á vínil og kassettu eftir 15 mánaða framleiðslumeðgöngu, að því er segir á Facebook-síðu tvíeykisins, og fer fögnuðurinn fram á Café Rosenberg kl. 17 í dag. Geta allir sem tryggðu sér eintak fyrirfram í gegnum Karolinafund nálgast eintök sín og fengið í kaupbæti D&O-lag að eigin vali sem verður flutt á staðnum af þeim félögum, Þorgeiri Tryggvasyni og Ármanni Guðmundssyni. Platan og kasettan verða einnig til sölu og kaupendur fá einnig óskalag í kaupbæti. Fullskipaðir útgáfutónleikar verða svo haldnir fljótlega, að því er fram kemur á fésbókinni.