Abigail Breslin er meðal leikenda.
Abigail Breslin er meðal leikenda. — AFP/Jesse Grant
Ásökun Áhugafólk um dómsalsdrama ætti að fá eitthvað fyrir sinn snúð í bandaríska myndaflokknum Accused. Hver þáttur hefst í dómsal og smám saman fáum við að kynnast hinum ákærða og því sem honum er gefið að sök með því að horfa í baksýnisspegilinn

Ásökun Áhugafólk um dómsalsdrama ætti að fá eitthvað fyrir sinn snúð í bandaríska myndaflokknum Accused. Hver þáttur hefst í dómsal og smám saman fáum við að kynnast hinum ákærða og því sem honum er gefið að sök með því að horfa í baksýnisspegilinn. Hljómi nafnið og þemað kunnuglega er það vegna þess að Bretar gerðu þætti með sama nafni fyrir rúmum áratug, þar sem Olivia Colman fór á kostum. Meðal leikenda nú eru Wendell Pierce, Michael Chiklis, Margo Martindale, Abigail Breslin, Rachel Bilson og Jack Davenport. Það er Fox sem sýnir þættina vestra.