Heimildarmyndin Back to Black, um ævi Amy Winehouse er í fullum smíðum um þessar mundir og fyrstu myndir af leikkonunni Marisu Abela, sem leikur Amy, hafa nú birst. Marisa sást við tökur í London í síðustu viku og skartaði þar svartri hárkollu og…

Heimildarmyndin Back to Black, um ævi Amy Winehouse er í fullum smíðum um þessar mundir og fyrstu myndir af leikkonunni Marisu Abela, sem leikur Amy, hafa nú birst. Marisa sást við tökur í London í síðustu viku og skartaði þar svartri hárkollu og greiðslu sem Amy var þekkt fyrir, ásamt því að vera með svartan þykkan augnblýant sem var einkennisförðun Amy. Kommentakerfið fór á flug í kjölfar myndbirtingarinnar og mætti segja að fólk hafi ekki verið sátt við útlit Marisu sem þykir alls ekki nógu lík Amy Winehouse

Fylgstu með Stjörnufréttum Evu Ruzu á K100 og K100.is