Rishi Sunak
Rishi Sunak
Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, var í gær sektaður af lögreglunni í Lancashire fyrir að hafa ekki verið með sætisól í bifreið á ferð. Sunak var að taka upp myndband fyrir Instagram, en hann var á ferðalagi um norðurhluta Englands að kynna…

Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, var í gær sektaður af lögreglunni í Lancashire fyrir að hafa ekki verið með sætisól í bifreið á ferð. Sunak var að taka upp myndband fyrir Instagram, en hann var á ferðalagi um norðurhluta Englands að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að styðja við landshlutann.

Sunak hefur þegar beðist afsökunar á atvikinu og borið fyrir sig dómgreindarbrest. Mun sektin nema 100 pundum, eða sem nemur 17.645 íslenskum krónum.