Arsenal Leandro Trossard er afar fjölhæfur sóknarmaður.
Arsenal Leandro Trossard er afar fjölhæfur sóknarmaður. — AFP/Gabriel Bouys
Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, hefur fest kaup á belgíska knattspyrnumanninum Leandro Trossard. Hann kemur frá Brighton, þar sem Trossard lék undanfarið þrjú og hálft ár. Arsenal greiðir 20 milljónir punda fyrir Trossard og gæti…

Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, hefur fest kaup á belgíska knattspyrnumanninum Leandro Trossard. Hann kemur frá Brighton, þar sem Trossard lék undanfarið þrjú og hálft ár. Arsenal greiðir 20 milljónir punda fyrir Trossard og gæti verðmiðinn hækkað upp í 27 milljónir með árangurstengdum greiðslum. Hann er 28 ára gamall sóknarmaður sem hefur leikið 116 úrvalsdeildarleiki fyrir Brighton og 24 landsleiki fyrir Belgíu.