Maria „Masha“ Alyokhina
Maria „Masha“ Alyokhina
Vegna mikillar aðsóknar að sýningunni Flauelshryðjuverk - Rússland Pussy Riot í Kling & Bang í Marshallhúsinu hefur sýningartíminn verið framlengdur til 29. janúar. Í dag kl

Vegna mikillar aðsóknar að sýningunni Flauelshryðjuverk - Rússland Pussy Riot í Kling & Bang í Marshallhúsinu hefur sýningartíminn verið framlengdur til 29. janúar. Í dag kl. 15 og fimmtudaginn næsta, 26. janúar kl. 20, leiðir höfundur sýningarinnar, Maria „Masha“ Alyokhina í Pussy Riot, gesti um sýninguna og segir frá henni. Gestir fá að heyra frásögn hennar um gjörninga Pussy Riot og baráttu hópsins fyrir frelsi og réttlæti í heimalandi sínu, Rússlandi.

Leiðsagnirnar fara fram á ensku og aðgangur að galleríinu og leiðsögnunum er ókeypis.