Grænhöfðaeyjar ná jafntefli gegn Ungverjalandi á morgun. Eða vinna. Ísland sigrar Brasilíu og Portúgal nær ekki að vinna Svíþjóð. Þar með verður Ísland komið í átta liða úrslit heimsmeistaramótsins. Einfalt, ekki satt? Tvennt af þessu þrennu getur hæglega gengið upp

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Grænhöfðaeyjar ná jafntefli gegn Ungverjalandi á morgun. Eða vinna.

Ísland sigrar Brasilíu og Portúgal nær ekki að vinna Svíþjóð.

Þar með verður Ísland komið í átta liða úrslit heimsmeistaramótsins. Einfalt, ekki satt?

Tvennt af þessu þrennu getur hæglega gengið upp. Íslenska liðið ætti að vinna Brasilíu á eðlilegum degi, ef vonbrigðin eftir tapið gegn Svíum í gærkvöld verða ekki yfirþyrmandi.

Svíar ættu að vinna eða ná alla vega jafntefli gegn Portúgal, miðað við það sem á undan er gengið. En þeir eru reyndar vísir til að hvíla sína sterkustu menn þar sem þeir eru þegar búnir að vinna riðilinn.

Gallinn við þessar vangaveltur er sá að sunnudagurinn hefst á leik Ungverjalands og Grænhöfðaeyja og ungverska liðið mun aldrei klúðra þeirri stöðu sem það er komið í eftir sigurinn á Brasilíu í gær og tap íslenska liðsins. Því miður.

Það má lengi velta sér upp úr þessari niðurstöðu íslenska liðsins á mótinu og það er ljóst að lokakaflinn gegn Ungverjum mun sitja lengi í íslensku landsliðsmönnum.

En núna þarf að horfa fram á veginn. Í handboltanum gefst ekki langur tími til að sleikja sárin. Stórmót eru á dagskrá á hverju ári, stundum tvö. Næst er það EM í Þýskalandi eftir ár.

Íslenska liðið reyndist ekki tilbúið til að komast í hóp átta bestu að þessu sinni en það hefur tímann fyrir sér. Hópurinn í heild sinni er ungur, flestir á aldrinum 22 til 27 ára sem er ekki mikið í handboltanum þar sem margir af þeim bestu spila fram undir fertugt.

Nú þurfa leikmenn liðsins að ljúka keppni með sæmd á morgun og merkja við janúar 2024 á dagatalinu. Þá á þetta lið að geta tekið næsta skref á leiðinni á toppinn.