Hábeinn heppni gerir tilraun til að flýja heppnina, og einsemdina sem henni fylgir, með því að setjast að í Hlöðubæ. En tekur hann með sér í leiðinni gæfuna úr Andabæ? Edison er byrjaður í einkatímum hjá Lúðvík til að bæta lélegar einkunnir og þeir…

Hábeinn heppni gerir tilraun til að flýja heppnina, og einsemdina sem henni fylgir, með því að setjast að í Hlöðubæ. En tekur hann með sér í leiðinni gæfuna úr Andabæ? Edison er byrjaður í einkatímum hjá Lúðvík til að bæta lélegar einkunnir og þeir byrja á myndlistinni sem reynist flóknari en ­Edison gerði ráð fyrir. Eitthvað undarlegt er á seyði í Andabæ svo Mikki skellir sér í heimsókn til Andrésar, sem fær Stálöndina til að aðstoða vin sinn. Birgitta er ósátt við Jóakim og segir frá því á samfélagsmiðlum. Viðbrögðin eru hörð en ein manneskja tekur undir með henni – hver skyldi það vera?