[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Við Grandaveg 42B í Reykjavík er að finna glæsilega 151 fm íbúð sem er í blokk sem byggð var 2016. Íbúðin er á annarri hæð og státar af einstöku útsýni út á sjó. Íbúðin er líka með yfirbyggðum 22 fm svölum, sem er eftirsótt hérlendis

Við Grandaveg 42B í Reykjavík er að finna glæsilega 151 fm íbúð sem er í blokk sem byggð var 2016. Íbúðin er á annarri hæð og státar af einstöku útsýni út á sjó. Íbúðin er líka með yfirbyggðum 22 fm svölum, sem er eftirsótt hérlendis. Sem er svo sem ekki skrýtið þar sem allra veðra er von – sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Það sem vekur athygli er hvernig gólfið er flísalagt á svölunum með heillandi munstri.

Í íbúðinni eru sérsmíðaðar innréttingar og í eldhúsinu taka gular flísar sitt pláss en þær eru hafðar á milli efri og neðri skápa. Þær fara vel við dökkbrúnar innréttingar og hvíta sprautulakkaða efri skápa.

Hægt er að skoða íbúðina nánar á fasteignavef mbl.is.