Nýtt ár kallar á nýja strauma þegar kemur að heimilinu. 2023 kallar á ljósari liti og mýkt. Ljósar viðartegundir eiga upp á pallborðið og eru sífellt að verða vinsælli. Ljósar loftklæðninar og ljósar viðarborðplötur geta gert hvert heimili töluvert…
Nýtt ár kallar á nýja strauma þegar kemur að heimilinu. 2023 kallar á ljósari liti og mýkt. Ljósar viðartegundir eiga upp á pallborðið og eru sífellt að verða vinsælli. Ljósar loftklæðninar og ljósar viðarborðplötur geta gert hvert heimili töluvert hlýlegra en ef loftið væri skjannahvítt eða borðplötur úr plasti. Þú gætir haft þetta í huga ef þú ert að fara í endurbætur á heimilinu. Annars má splæsa í bastmottu eða mála veggina í grænum tónum og fá sér kringlóttar mottur til þess að fá inn nýja orku.