Landsréttur Endurupptökudómur sendir sex mál aftur til baka.
Landsréttur Endurupptökudómur sendir sex mál aftur til baka. — Morgunblaðið/Hanna
Sex dómar, sem felldir voru í Landsrétti árið 2018, verða teknir upp að nýju, að því er endurupptökudómur staðfesti í vikunni. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að því að þáverandi dómsmálaráðherra, Sigríður Andersen, hefði brotið gegn…

Sex dómar, sem felldir voru í Landsrétti árið 2018, verða teknir upp að nýju, að því er endurupptökudómur staðfesti í vikunni.

Mannréttindadómstóll Evrópu komst að því að þáverandi dómsmálaráðherra, Sigríður Andersen, hefði brotið gegn rannsóknarreglu við skipun dómara við Landsrétt, og höfðu þeir dómarar dæmt í málunum. Við skipun dómaranna fór Sigríður ekki einvörðungu eftir mati hæfnisnefndar, sem gefið hafði umsækjendum einkunnir með þremur aukastöfum. Skattsvikamál er á meðal þeirra mála sem verða endurupptekin en þar var Friðjón Björgvin Gunnarsson sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldsbrot í starfsemi tveggja einkahlutafélaga, auk peningaþvættis.

Var hann dæmdur til 18 mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar auk sektargreiðslu að fjárhæð 258 milljónir króna.

Önnur mál sem um ræðir eru fíkniefnamál, kynferðisbrotamál og ofbeldismál. Mál þar sem sakborningar voru sýknaðir verða ekki endurupptekin samkvæmt lögum um meðferð sakamála.