„Það eru þvílík tímamót framundan hjá mér. Bæði er ég að verða fertugur og þá ætla ég að láta „roasta“ mig. Fyrir þá sem vita ekki hvað það er þá koma vinir og vandamenn saman og tala illa um mann,“ segir Þórhallur Þórhallsson í samtali við Ísland vaknar á K100

„Það eru þvílík tímamót framundan hjá mér. Bæði er ég að verða fertugur og þá ætla ég að láta „roasta“ mig. Fyrir þá sem vita ekki hvað það er þá koma vinir og vandamenn saman og tala illa um mann,“ segir Þórhallur Þórhallsson í samtali við Ísland vaknar á K100. Þar ræddi hann líka 20 ára uppistandsafmæli sitt í mars. „Þetta er svona meinfyndið. Það verður farið langt yfir strikið og maður er bara tekinn í bakaríið og grillaður,“ sagði Þórhallur en „grillunin“ verður 23. febrúar á Gauknum.