Íslandsmet Erna Sóley kastaði fjórum sinnum yfir gamla metinu sínu.
Íslandsmet Erna Sóley kastaði fjórum sinnum yfir gamla metinu sínu. — Morgunblaðið/Hákon
Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR stórbætti í gær eigið Íslandsmet í kúluvarpi kvenna innanhúss á Houston Invitational-mótinu í Texas í Bandaríkjunum. Fjögur af sex köstum Ernu Sóleyjar voru yfir 17 metra og þannig yfir gamla meti hennar, sem var 16,95 metrar

Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR stórbætti í gær eigið Íslandsmet í kúluvarpi kvenna innanhúss á Houston Invitational-mótinu í Texas í Bandaríkjunum. Fjögur af sex köstum Ernu Sóleyjar voru yfir 17 metra og þannig yfir gamla meti hennar, sem var 16,95 metrar. Lengsta kast hennar mældist 17,34 metrar sem er, auk þess að vera nýtt Íslandsmet, einnig nýtt mótsmet. Kastið er einnig lengra en Íslandsmet hennar utanhúss, sem er 17,29 metrar.