Zoe Saldaña er fyrsti leikarinn til að fara með hlutverk í fjórum kvikmyndum sem hafa halað inn yfir tvo milljarða bandaríkjadollara. Saldaña fór með hlutverk Neytiri í báðum Avatar-myndum James Camerons, þeirri fyrstu frá 2009 og svo…
Zoe Saldaña er fyrsti leikarinn til að fara með hlutverk í fjórum kvikmyndum sem hafa halað inn yfir tvo milljarða bandaríkjadollara. Saldaña fór með hlutverk Neytiri í báðum Avatar-myndum James Camerons, þeirri fyrstu frá 2009 og svo þeirri nýjustu Avatar: The Way of the Water. Einnig leikur hún Gamoru í geimveruteyminu Guardians of the Galaxy sem birtist m.a. í Marvel-stórmyndunum Avengers: Infinity War (2018) og Avengers: Endgame (2019) sem báðar skiluðu yfir tveimur milljörðum.