Framherji Pætur Petersen skoraði 10 mörk fyrir HB í deildinni í fyrra.
Framherji Pætur Petersen skoraði 10 mörk fyrir HB í deildinni í fyrra. — Ljósmynd/KA
KA hefur fengið til liðs við sig færeyska knattspyrnumanninn Pætur Petersen frá HB í Þórshöfn og samið við hann til þriggja ára. Pætur er 24 ára sóknarmaður sem lék sína fyrstu A-landsleiki í nóvember

KA hefur fengið til liðs við sig færeyska knattspyrnumanninn Pætur Petersen frá HB í Þórshöfn og samið við hann til þriggja ára. Pætur er 24 ára sóknarmaður sem lék sína fyrstu A-landsleiki í nóvember. Hann hefur orðið bæði færeyskur meistari og bikarmeistari með HB og leikið með liðinu í Evrópukeppni. Pætur hefur leikið 154 leiki í færeysku úrvalsdeildinni og skorað í þeim 35 mörk, 10 þeirra í 25 leikjum á síðasta tímabili.