— Ljósmyndir/Valgeir Ómar
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Götur og hús á Dalvík hafa nú fengið nýjan svip í tilefni upptaka á sjónvarpsþáttunum True Detective. Sett hefur verið upp leikmynd sem breytir Dalvík í bæinn Ennis í Alaska í Bandaríkjunum, líkt og gert var í Keflavík seint á síðasta ári

Götur og hús á Dalvík hafa nú fengið nýjan svip í tilefni upptaka á sjónvarpsþáttunum True Detective. Sett hefur verið upp leikmynd sem breytir Dalvík í bæinn Ennis í Alaska í Bandaríkjunum, líkt og gert var í Keflavík seint á síðasta ári. Tökur á Dalvík hefjast senn og standa eitthvað fram í febrúar. Leikkonan Jodie Foster fer fer með aðalhlutverk í þáttunum. Þeir eru eitt af stærri kvikmyndaverkefnum sem unnin hafa verið á Íslandi.

„Á síðustu dögum hefur bærinn okkar öðlast alveg nýjan svip,“ segir Júlíus Júlíusson, íbúi á Dalvík, í samtali við Morgunblaðið. „Við Hafnarbraut, sem er aðalgatan í gegnum byggðarlagið, hafa verið settir upp ljósastraurar sem vírar eru tengdir á milli. Byggingar hafa fengið nýjan svip í ameríska stílnum eða sett er á þau bíslag. Hér í útjaðri bæjarins er komið heilt hjólhýsahverfi og fyrr í dag sá ég að á svæðið var kominn flutningavagn með gamla bíla um borð, sem væntanlega verða notaðir sem leikmunir.“

Tugir iðnaðarmanna hafa síðustu vikur verið á Dalvík og sett þar upp leikmyndir og lýsingu, það er jólaskraut, enda gerist sagan í True Detective á þeirri hátíð. Um 80-100 manns, sem tengjast kvikmyndaverkefninu, eru í bænum en búist er við að fjöldinn fari í allt að 300 manns á næstu dögum þegar tökur og annað sem þeim fylgir hefjast. sbs@mbl.is