Miðillinn N4 ehf. á Akureyri hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum eftir að tilraunir til að tryggja framtíð fyrirtækisins báru ekki árangur. Frá þessu greinir fyrirtækið í tilkynningu á vefsíðu sinni.
„Þessum kafla í sögu fjölmiðla á Íslandi er lokið að sinni,“ segir þar. „Rekstur fjölmiðils eins og N4 hefur byggst á óeigingjörnu starfi starfsfólks í sífellt erfiðara rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi. Fyrir það á starfsfólkið mikið hrós skilið. Stjórn fyrirtækisins harmar þessa niðurstöðu, ekki síst í ljósi þess að N4 hefur verið eini fjölmiðillinn sem framleitt hefur íslenskt sjónvarpsefni utan höfuðborgarsvæðisins.“