Fundur Jón Gunnarsson ráðherra með sínu starfsfólki úr dómsmálaráðuneytinu sat fyrir svörum hjá þingnefndum í gær vegna flugvélamálsins.
Fundur Jón Gunnarsson ráðherra með sínu starfsfólki úr dómsmálaráðuneytinu sat fyrir svörum hjá þingnefndum í gær vegna flugvélamálsins. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dómsmálaráðherra reiknar með því að fallið verði frá þeim áformum að selja eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF. Ríkisstjórnin fundaði um málið í gær en ráðherrann hafði áður ákveðið að selja vélina til að hagræða í rekstri Landhelgisgæslunnar

Veronika Steinunn Magnúsdóttir

veronika@mbl.is

Dómsmálaráðherra reiknar með því að fallið verði frá þeim áformum að selja eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF. Ríkisstjórnin fundaði um málið í gær en ráðherrann hafði áður ákveðið að selja vélina til að hagræða í rekstri Landhelgisgæslunnar.

Ráðherrar andmæltu

„Viðbrögð við þessu hafa verið þannig að bæði alþingismenn og ráðherrar hafa lýst vonbrigðum með þetta. Ég hef fengið þau skilaboð mjög ákveðið að menn vilji leysa þetta með öðrum hætti fyrir þetta rekstrarár,“ sagði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra í samtali við mbl.is í gær. Ráðherrann sagðist fagna því mjög að þurfa ekki að grípa til þessarra aðgerða í samstarfi við Landhelgisgæsluna við þær aðstæður sem uppi eru.

Landhelgisgæslan hafði beðið um 7-800 milljónir umfram það sem fékkst í fjárlögum og reiknar Jón með því að framlög til Gæslunnar verði aukin, verði fallið frá sölu vélarinnar.

Endanleg ákvörðun liggi fyrir á næstu dögum

„Okkar mat er að það þurfi þá nokkur hundruð milljónir til þess að standa undir óbreyttum rekstri. Ég heyri áhuga og vilja í þinginu og hjá ráðherrum til að mæta þessum erfiðleikum fyrir þetta rekstrarár. Við fögnum því,“ segir Jón. Hann vekur þó athygli á að vélin þyki óhagkvæm í rekstri og því verði unnið að því að bæta þann rekstrarþátt.

„Á sama tíma höldum við áfram þeirri vinnu sem við höfum þegar hafið, um það að auka hagkvæmni í þessum rekstrarþætti Gæslunnar.“

Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um að falla frá sölu vélarinnar en líklegt er að hún liggi fyrir á næstu dögum.

Jón var boðaður á fundi fjárlaganefndar og utanríkismálanefndar, sem fram fóru fyrir hádegi í gær, til þess að ræða fyrirhugaða sölu á TF-SIF. Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar, sagði að loknum fundi nefndarinnar að alvarleiki málsins hefði skýrst.

Höf.: Veronika Steinunn Magnúsdóttir