Bæjarstjórn Árborgar ákvað á fundi sínum í vikunni að lækka laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna á vegum sveitarfélagsins um fimm prósent og jafnframt að engar hækkanir yrðu á launum á þessu ári.
Níu af ellefu bæjarfulltrúum samþykktu þessar tillögur en fulltrúar Samfylkingarinnar greiddu atkvæði á móti.
Með lækkuninni er ætlað að spara megi rúma 21 milljón króna á ári. „Þetta er skref í því að ná tökum á rekstri sveitarfélagsins,“ segir Bragi Bjarnason, formaður bæjarráðs og oddviti D-listans í bæjarstjórn. Hann segir að búast megi við frekari sparnaðaraðgerðum á næstunni. „Við erum bara á þeim stað að þurfa að skoða allar mögulegar leiðir í þeim efnum og erum í mikilli vinnu við það í góðu samráði við okkar starfsfólk,“ segir Bragi. » 19