Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Allar aðgerðir Seðlabankans eru verðbólguhvetjandi. Fyrirtækin í landinu skulda 5.500 milljarða. Hver einasta prósentuhækkun stýrivaxta kostar 55 milljarða og Seðlabankinn hefur sexfaldað vexti á rúmu ári

Allar aðgerðir Seðlabankans eru verðbólguhvetjandi.

Fyrirtækin í landinu skulda 5.500 milljarða. Hver einasta prósentuhækkun stýrivaxta kostar 55 milljarða og Seðlabankinn hefur sexfaldað vexti á rúmu ári.

Aukinn vaxtakostnaður fyrirtækja er því um 275 milljarðar.

Fyrirtæki sækja tekjur á móti þessum aukna kostnaði að sjálfsögðu til neytenda með því að hækka verð, sem aftur veldur meiri verðbólgu.

Þetta er ekki flókið. Það eru bara þau, sem eru yfir hagstjórninni á landinu, sem sjá ekki þennan einfalda sannleika og það er skelfileg tilhugsun.

Hinn möguleikinn er að þau viti þetta vel. En markmið þeirra sé ekki í raun að ná niður verðbólgu heldur hlaða undir fjármálafyrirtækin og gera eins mörg heimili og hægt er að þrælum þeirra.

Talið er líklegt að á miðvikudaginn hækki Seðlabankinn vexti enn meira VEGNA hækkana sem ríkisstjórnin sjálf hefur valdið.

Að ríkisstjórnin skuli valda þjóðinni slíkum skaða, á tímum sem þessum, er umfjöllunarefni út af fyrir sig, en burtséð frá því gengur slík röksemdafærsla ekki upp.

Aukin verðbólga vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar er „einskiptishækkun“. Sú hækkun er þegar orðin og mun ekki valda frekari hækkun á verðbólgu héðan af. Vaxtahækkun VEGNA þessara hækkana, slær því ekki á þær á nokkurn hátt.

Það eina sem myndi slá á þessar hækkanir væri ef ríkisstjórnin myndi draga þær til baka, en það mun ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur seint gera, enda hefur hún sýnt hagsmunum fólksins í landinu algjört skeytingarleysi með aðgerðaleysi sínu .

Þetta er ríkisstjórn sem hefur sett öll völd yfir heimilum landsins í hendur embættismanna sem nú kasta úr hverri eldvörpunni af annarri yfir varnarlaust fólk.

Ríkisstjórnin stendur til hliðar og leyfir þessu að gerast án þess svo mikið að spyrna við fótum því henni er nákvæmlega sama um heimili landsins. Hugur hennar er hjá fjármálafyrirtækjunum og þangað beinist öll hennar umhyggja.

Þar ganga hún og Seðlabankinn algjörlega í takt og enginn skal efast um að allar vaxtahækkanir Seðlabankans eru gerðar með fullri vitund, vitneskju og blessun Bjarna Benediktssonar og ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.

Ríkisstjórnin ber fulla pólitíska ábyrgð á því sem nú er að gerast ásamt þeim afleiðingum sem fylgja í kjölfarið á næstu árum.

Ég hef algjöra skömm á þessu.

Ekkert þeirra mun taka nokkra ábyrgð á gjörðum sínum. Þegar skaðinn sem þau hafa valdið verður öllum ljós munu þau fara með möntruna um að það sé „ekki hægt að bjarga öllum“.

Það er kannski ekki hægt að bjarga öllum, en það er óþarfi að hrinda þeim fyrir björgin sem annars hefðu ekki dottið.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.

Höf.: Ásthildur Lóa Þórsdóttir