Um það bil 8-10 bollur ½ msk. þurrger ½ bolli volgt vatn ½ bolli volg mjólk 1/3 bolli sykur 115 g bráðið smjör (plús 10-20 g í viðbót til að pensla með) 4 eggjarauður 1 tsk. vanilludropar 1 tsk

Um það bil 8-10 bollur

½ msk. þurrger

½ bolli volgt vatn

½ bolli volg mjólk

1/3 bolli sykur

115 g bráðið smjör (plús 10-20 g í viðbót til að pensla með)

4 eggjarauður

1 tsk. vanilludropar

1 tsk. sjávarsalt

3-3¼ bolli hveiti

Blandið geri, vatni, mjólk og sykri saman í skál og látið bíða í 3-5 mínútur. Blandið síðan smjöri, eggjarauðum, vanilludropum og salti vel saman við gerblönduna og þeytið létt. Bætið því næst 3 bollum af hveiti saman við og blandið vel með höndunum eða sleif. Deigið á að vera pínu klístrað, en ef það er of klístrað er gott að bæta restinni af hveitinu við. En athugið – því minna hveiti, því betra! Hyljið skálina með hreinu viskastykki og leyfið deiginu að hefast á hlýjum stað í 1½-2 klukkustundir, eða þar til það hefur tvöfaldast í stærð. Eftir það má annað hvort búa til brauð eða geyma deigið inni í ísskáp yfir nótt.

Hnoðið deigið og búið til þykka renninga úr því í höndunum. Snúið upp á renningana og búið þannig til bollur, felið báða enda undir bollunum. Raðið á ofnplötu og penslið létt með smjöri. Hyljið aftur með viskastykki og leyfið bollunum að hefast aftur í um 45 mínútur.

Hitið ofninn á meðan í 180°C. Stingið bollunum inn í ofn eftir þessi þrjú korter og bakið í 12-18 mínútur, allt eftir stærð bollanna.

Berið fram með smjöri og sultu eða áleggi að eigin vali.