40 ára Svanur er Reykvíkingur, ólst upp í 101 og býr þar. Hann er sjúkraliði að mennt og er í hjúkrunarfræðinámi við HÍ. Hann vinnur á Grund. Svanur stundar mikið fjallahjólreiðar og þjálfar þær á vegum Hjólreiðafélags Reykjavíkur

40 ára Svanur er Reykvíkingur, ólst upp í 101 og býr þar. Hann er sjúkraliði að mennt og er í hjúkrunarfræðinámi við HÍ. Hann vinnur á Grund. Svanur stundar mikið fjallahjólreiðar og þjálfar þær á vegum Hjólreiðafélags Reykjavíkur.

Fjölskylda Eiginkona Svans er Mercy Aikhlomionia, f. 1979 í Nígeríu. Hún vinnur við umönnun á Grund. Dóttir þeirra er María Kaja Ehi, f. 2022. Foreldrar Svans eru hjónin Hjálmar Haraldsson, f. 1956, verktaki og vinnur við að setja niður vegrið, og Svanhvít Ástvaldsdóttir, f. 1959, verslunarkona. Þau eru búsett í 101, Reykjavík.