Eldur Húsið stóð í björtu báli.
Eldur Húsið stóð í björtu báli. — Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Fjögur hundruð fermetra verkfærahús er fallið eftir eldsvoða við bæinn Ytri-Víðivelli í Fljótsdal í gærkvöldi. Húsið stóð í ljósum logum ásamt aðliggjandi hlöðu, sem þó var möguleiki á að bjarga, að sögn Harðar Guðmundssonar, eiganda verkfærahússins, áður en Morgunblaðið fór í prentun

Fjögur hundruð fermetra verkfærahús er fallið eftir eldsvoða við bæinn Ytri-Víðivelli í Fljótsdal í gærkvöldi.

Húsið stóð í ljósum logum ásamt aðliggjandi hlöðu, sem þó var möguleiki á að bjarga, að sögn Harðar Guðmundssonar, eiganda verkfærahússins, áður en Morgunblaðið fór í prentun.

Hann kom að eldinum eftir að hafa verið á æfingu fyrir þorrablót í félagsheimilinu Végarði, sem stendur þar nærri „Þegar ég kom heim var allt fullt af reyk,“ sagði hann í samtali við mbl.is.

Enginn búfénaður var í húsunum og varð engum meint af vegna eldsins, að sögn Harðar. Segir hann líta út fyrir að upptök eldsins megi rekja til viðarkyndara. Slökkvilið frá Egilsstöðum var þá að störfum á staðnum og gekk slökkvistarf vel. Vindur stóð frá nærliggjandi húsum og voru þau ekki talin í hættu.