500 g hveiti 1 1/2 tsk. salt 5 tsk. lyftiduft 1 lítil dós kotasæla 1 dl matarolía 2 dl kalt vatn 1 stórt egg 150 g fínt rifinn ostur Setjið hveiti, salt og lyftiduft í skál, bætið kotasælu, olíu, eggi og vatni út í

500 g hveiti
1 1/2 tsk. salt
5 tsk. lyftiduft
1 lítil dós kotasæla
1 dl matarolía
2 dl kalt vatn
1 stórt egg
150 g fínt rifinn ostur

Setjið hveiti, salt og lyftiduft í skál, bætið kotasælu, olíu, eggi og vatni út í. Bætið við osti og hnoðið lauslega. Þetta á að vera frekar lint deig. Bætið í vatni eða hveiti ef þarf.
Leggið deigið (ca 6 cm) á hveitistráð borð og fletjið út, um tveggja cm þykkt. Notið glas eða annað til að skera skonsurnar úr deiginu og raðið á bökunarpappír á bökunarplötu.
Penslið með eggjarauðu og mjólk. Bakið við 210°C í um 15 mínútur.

Uppskrift frá alberteldar.is.