Jenný Hjördís Sigurðardóttir fæddist 26. maí 1948. Hún lést 30. desember 2022. Útför hennar fór fram 26. janúar 2023.
Hún kallaði mig alltaf óskasteininn sinn og hún var svo sannarlega sú besta amma sem ég hefði getað óskað mér.
Hún var alltaf svo góð við mig og gaf mér mikinn innblástur til að vera ég sjálf.
Ég elska þig, besta amma Jenný, og veit að þú ert með Ragga afa á himninum.
Ég mun alltaf sakna þín og muna eftir þér alla mína tíð það sem eftir er.
Þín er sárt saknað.
Katrín Jenný Ingólfsdóttir ömmustelpa.