Magnús Finnur Jóhannsson (Finni) fæddist 28. júlí 1955. Hann lést 19. janúar 2023. Hann var jarðsunginn 2. febrúar 2023.

Elsku pabbi minn

Það er svo óraunverulegt að þú sért farinn frá okkur.

Ég veit að þú ert kominn á betri stað í fanginu á elskunni þinni, henni Denný. Þú náðir þér aldrei eftir andlát hennar fyrir 16 árum og við í raun ekki heldur, allt breyttist.

Ég set hér ljóð eftir þig sem mér er afar kært og á svo oft við.

Á meðan vindar blása

og veröld grætur.

Gefðu þá sjálfinu grið

því úti er einhver sem annt um

þig lætur

og vonar í hjartanu

finnir þú frið.

(Finni)

Við eigum margar góðar minningar, ég elskaði að syngja með þér í Sing Star og þá sérstalega Africa með Toto, þú fórst aldrei út af laginu þó svo rammfölsk ég syngi hástöfum.

Allar stundirnar með fjölskyldunni í Dölunum þar sem sungið var og trallað langt fram á nótt, og öll lögin sem samin voru af þér og systkinum þínum og mökum (kannski einhverjum börnum þeirra líka).

Mér fannst þú mesti töffari í heimi þegar ég var lítil og ætlaði að vera alveg eins og þú með öllu! Hef ekki náð að verða söngkona en aldrei að segja aldrei, ég náði þó hinum markmiðunum svo sannarlega.

Pabbi, ég elska þig alltaf og endalaust og læt hér fylgja annað ljóð eftir þig sem ég fann í einni af mörgum bókum sem þú hefur skrifað í, við eigum eftir að fara í gegnum þær allar.

Hann er dreki.

Hann heitir Víkingur

Breki.

En hvað sem því líður

er hann sannur og

blíður.

Elsku vinurinn,

passaðu allan

stelpnahópinn minn.

(Finni afi)

Víkingur ætlar að passa okkur og vildi að hann hefði fengið meiri tíma með afa sínum.

Þín dóttir

Erla.

Í dag verður Magnús Finnur Jóhannsson vinur minn kvaddur hinsta sinni. Við kynntumst fyrst þegar við vorum rétt skriðnir yfir tvítugsaldurinn. Hans var beðið með óþreyju því hann kom til greina sem söngvari í hljómsveitinni sem við nokkrir félagar vorum að stofna. Hann var í hljómsveitinni Stofnþel og fóru sögur af undraverðum sönghæfileikum hans. Ég hafði aldrei heyrt í honum en hafði heyrt því fleygt að hann gengi undir nafninu „Stormbringer“.

Það var spennuþrungið andrúmsloft í bílskúrnum við Kársnesbraut 63 þegar hann ásamt Tryggva Hübner gítarleikara úr Stofnþeli komu inn um dyrnar. Við vorum að æfa frumsamið lag eftir mig sem hét: „I'm a man“. Hann kom með sinn eigin hljóðnema sem hann stakk í samband. Hann lærði lagið á ljóshraða og röddin hans fór laginu vel. Æfingin gekk svo vel að það var ákveðið að hljómsveitin skyldi formlega verða skipuð þessum fimm einstaklingum sem þarna voru saman komnir. Hann var sannarlega „Stormbringer“. Við Finni (eins og hann var alltaf kallaður) náðum vel saman og hann var eins og fæddur til að syngja lögin mín og öll hin sem okkur langaði til að hafa á efnisskránni. Tveimur mánuðum síðar vorum við tilbúnir að koma fram opinberlega og það átti sér stað sprenging. Hljómsveitin Cabaret leit dagsins ljós og var kosin „Bjartasta vonin“ það ár og Finni kosinn efnilegasti söngvarinn í bransanum. Honum skaut upp á stjörnuhimininn með stórum hvelli.

Það er margs að minnast frá þessum árum en mest um vert er sú vinátta og þau sérstöku tengsl sem við Finni áttum. Þau vináttubönd héldust lengi og hann kom til okkar í hljómsveitina Tíbrá frá Akranesi mörgum árum síðar og þar áttum við gott tímabil líka. Við tókum upp plötu með lögum eftir mig og náðum vel saman eins og forðum. En síðan skildi leiðir og Finni vinur minn átti eftir að kneyfa ört sitt ljúfa líf á meðan ég sagði skilið við Bakkus og það slaknaði á vináttuböndum okkar. Lífið reyndist Finna mínum erfitt þrátt fyrir allar þær góðu gjafir sem hann hafði hlotið í öndverðu. Hann háði harða baráttu við alkóhólisma og mikið sem hann reyndi að komast inn á rétta braut. Ég get því miður ekki fylgt honum síðasta spölinn en hugur minn dvelur við góðu minningarnar og sá músíkalski drengur sem Finni var á sinni tíð er nú lagður af stað í sína hinstu ferð í þessari jarðvist og megi allar góðar vættir fylgja honum hvert svo sem hún liggur. Eftir sitja alls konar stef og laglínur og hljómur söngraddar hans verður ávallt í minni mér.

Ég sendi ættingjum hans og afkomendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Bless Finni minn og takk fyrir allar góðu stundirnar.

Kveðja

Valgeir Skagfjörð.