Ingibjörg Guðrún Haraldsdóttir fæddist 4. maí 1951. Hún andaðist 17. janúar 2023.

Ingibjörg var jarðsungin 26. janúar 2023.

Elsku Inga mín, ég ætla að þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman með nokkrum orðum hér þó að ég geti aldrei talið þær allar upp hér. Inga mín, mikið á eftir að sakna þín og erfitt er að kveðja hinstu kveðju mína bestu vinkonu.

Að geta ekki farið til þín og lagt fyrir þig einhverjar hugmyndir sem ég var að brasa með hvort gengi upp eða ekki er svolítið undalegt þar sem þú varst alltaf tilbúin að gefa mér tíma, alltaf tilbúin að hjálpa og alltaf tilbúin að eiga samverustundir með allri fjölskyldunni. Það var svo sérstakt okkar vinasamband, við hjálpuðumst svo mikið að við allt mögulegt hvor hjá annarri og sérstaklega þótti mér svo mikið vænt um það þegar þú baðst mig að vera hjá þér þegar hún Sigrún Hanna þín fæddist, þá grétum við og hlógum á sama augnablikinu.

Að labba upp brekkuna að vorlagi til þín að kvöldi eftir að allt var komið í ró heima hjá mér og athuga hvort við ættum að eiga smástund á pallinum þínum og dást að vorinu, rósunum og runnanum sem þú vildir alltaf sjá dafna betur, þetta leiðindaskarð sem þú lagðir þig alla fram við að loka og ég að reyna að vera með góð ráð og svo hlógum við að öllu saman.

Seinustu ár hafa verið þér mjög erfið en ég taldi mér alltaf trú um að þú tengdir við mig eitthvað þó að þú værir hætt að nefna nafnið mitt.

Takk Inga mín og ég bið góðan guð að styrkja fjölskylduna í sorginni.

Jóhanna Birna.