Létt yfir Kutcher og Witherspoon.
Létt yfir Kutcher og Witherspoon. — AFP/JC Olivera
Rómkóm Rómantískar gaman­myndir hafa ekki átt upp á pallborðið undanfarin ár en efnisveitan Netflix hyggst snúa vörn í sókn og hefur fengið til liðs við sig engin önnur en Reese Witherspoon og Ashton Kutcher

Rómkóm Rómantískar gaman­myndir hafa ekki átt upp á pallborðið undanfarin ár en efnisveitan Netflix hyggst snúa vörn í sókn og hefur fengið til liðs við sig engin önnur en Reese Witherspoon og Ashton Kutcher. Myndin kallast Your Place or Mine og verður frumsýnd á föstudaginn, í tæka tíð fyrir Valentín­usardaginn. Stórstjörnurnar leika aldavini sem búa hvort á sinni strönd Bandaríkjanna en hafa íbúðaskipti meðan Kutcher passar son Witherspoon. Þá rennur skyndilega upp fyrir þeim ljós. Þið vitið hvað! Þetta er jú rómkóm. Höfundur handrits og leikstjóri er Aline Brosh McKenna sem m.a. gerði 27 Dresses.