Kyrie Irving, leikmaður Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfuknattleik, mun í vikunni ganga til liðs við Dallas Mavericks eftir að hafa óskað eftir skiptum frá félaginu fyrir helgi. Brooklyn fær í staðinn tvo leikmenn og nýliðaval árin 2027 og 2029
Kyrie Irving, leikmaður Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfuknattleik, mun í vikunni ganga til liðs við Dallas Mavericks eftir að hafa óskað eftir skiptum frá félaginu fyrir helgi. Brooklyn fær í staðinn tvo leikmenn og nýliðaval árin 2027 og 2029. Þetta er gríðarlegur styrkur fyrir lið Dallas sem fyrir er með Slóvenann snjalla Luka Doncic og með þessa tvo innanborðs gæti liðið farið langt í baráttunni um titlana í vor.