Þjálfari Halldór Jón Sigurðsson stýrir Tindastóli í Bestu deildinni.
Þjálfari Halldór Jón Sigurðsson stýrir Tindastóli í Bestu deildinni. — Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Tindastóll hefur samið við knattspyrnukonurnar Monicu Wilhelm og Gwen Mummert um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili í Bestu deildinni. Wilhelm, sem er bandarísk, er markvörður sem hefur leikið í fjögur ár með Iowa-háskólanum en Mummert,…

Tindastóll hefur samið við knattspyrnukonurnar Monicu Wilhelm og Gwen Mummert um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili í Bestu deildinni. Wilhelm, sem er bandarísk, er markvörður sem hefur leikið í fjögur ár með Iowa-háskólanum en Mummert, sem er þýskur varnarmaður, hefur leikið með Mississippi State síðustu tvö árin. Tindastóll er nýliði í efstu deild en liðið hafnaði í öðru sæti 1. deildarinnar síðasta sumar.