Erling Einarsson fæddist 7. ágúst 1938. Hann lést 24. janúar 2023. Útför Erlings fór fram 2. febrúar 2023.

Elsku tengdapabbi okkar er látinn, 84 ára að aldri. Við vorum rétt að verða fullorðnar þegar við komum inn í fjölskyldu Erlings og Kristínar. Þau tóku okkur opnum örmum og við upplifðum okkur strax sem hluta af fjölskyldunni. Erling var alltaf hress og kátur, lundin var létt og hann var með góða nærveru. Hann hugsaði vel og mikið um fólkið sitt og vildi allt fyrir okkur gera. Erling lifði einföldu og góðu lífi. Hann var harðduglegur, tók þátt í öllum þeim störfum sem sinna þurfti á heimilinu og var fús að hjálpa þegar við vorum að byrja okkar búskap. Hann var börnunum okkar góð fyrirmynd, ljúfur, elskandi, hrekkjóttur og skemmtilegur. Hann bauðst til að útrétta, gæta barna og taka á móti skaranum hvenær sem okkur hentaði og barnabörnin voru afar hænd að afa sínum með sinn mjúka faðm og hlýja bros. Við erum þakklátar fyrir tengdapabba okkar og eigum eftir að sakna hans mikið enda stór hluti af tilveru okkar allra.

Við vottum tengdamömmu okkar innilega samúð.

Ásdís Eydal og Guðrún Berglind Bessadóttir.