— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veðurguðirnir buðu upp á allar gerðir af snjóveðri í gær. Á tímabili var snjómugga en svo skafrenningur. Smiðirnir í Urriðaholti þurftu að laga sig að aðstæðum og upphafsorð ljóðsins Móðurást eftir Jónas Hallgrímsson komu upp í hugann: „Fýkur yfir…

Veðurguðirnir buðu upp á allar gerðir af snjóveðri í gær. Á tímabili var snjómugga en svo skafrenningur.
Smiðirnir í Urriðaholti þurftu að laga sig að aðstæðum og upphafsorð ljóðsins Móðurást eftir Jónas Hallgrímsson komu upp í hugann: „Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel, í fjallinu dunar, en komið er él.“ Spáð er hlýnandi veðri næstu helgi.