Þjálfari Rúnar Páll Sigmundsson stýrir Fylki í efstu deild í sumar.
Þjálfari Rúnar Páll Sigmundsson stýrir Fylki í efstu deild í sumar. — Ljósmynd/Kristinn Steinn
Knattspyrnumaðurinn Valgeir Árni Svansson er genginn til liðs við Fylki í Bestu deildinni og mun hann leika með liðinu á komandi keppnistímabili. Valgeir Árni, sem er 25 ára gamall, kemur til félagsins frá Hönefoss í Noregi þar sem hann lék í D-deildinni á síðustu leiktíð

Knattspyrnumaðurinn Valgeir Árni Svansson er genginn til liðs við Fylki í Bestu deildinni og mun hann leika með liðinu á komandi keppnistímabili. Valgeir Árni, sem er 25 ára gamall, kemur til félagsins frá Hönefoss í Noregi þar sem hann lék í D-deildinni á síðustu leiktíð. Hann er uppalinn hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ en alls á hann að baki 48 leiki í 1. deildinni þar sem hann hefur skorað þrjú mörk. Fylkir fagnaði sigri í 1. deildinni síðasta sumar.