Alls höfðu 32 snjóflóð fallið í Ísafjarðardjúpi í gær, samkvæmt tölum í skrá Veðurstofunnar seint í gærkvöldi. Nokkur flóðanna fóru yfir Súðavíkurhlíð. Veginum var í kjölfarið lokað. „Það er allt skráð, sama hversu lítið það er

Alls höfðu 32 snjóflóð fallið í Ísafjarðardjúpi í gær, samkvæmt tölum í skrá Veðurstofunnar seint í gærkvöldi. Nokkur flóðanna fóru yfir Súðavíkurhlíð. Veginum var í kjölfarið lokað.

„Það er allt skráð, sama hversu lítið það er. Þannig að þetta kannski lítur út fyrir að vera mikið en það er bara af því að það er svo nákvæm skráning á þessum vegi,“ sagði Óliver Hilmarsson, sérfræðingur í ofanflóðum hjá Veðurstofunni, í samtali við mbl.is. Bætti hann við að þessi fjöldi flóða teldist ekki óvenjulegur.