Phoenix Kevin Durant er á meðal bestu leikmanna deildarinnar.
Phoenix Kevin Durant er á meðal bestu leikmanna deildarinnar. — AFP/Jamie Squire
Bandaríska körfuboltafélagið Brooklyn Nets í NBA-deildinni hefur misst aðra stórstjörnuna á örfáum dögum, því Kevin Durant er á leiðinni til Phoenix Suns. Fyrr í vikunni skipti Kyrie Irving frá Brooklyn til Dallas Mavericks og lék sinn fyrsta leik með Dallas-liðinu í gærnótt

Bandaríska körfuboltafélagið Brooklyn Nets í NBA-deildinni hefur misst aðra stórstjörnuna á örfáum dögum, því Kevin Durant er á leiðinni til Phoenix Suns. Fyrr í vikunni skipti Kyrie Irving frá Brooklyn til Dallas Mavericks og lék sinn fyrsta leik með Dallas-liðinu í gærnótt.

Í staðinn fyrir Durant fær Brooklyn Mikal Bridges, Cam Johnson og Jae Crowder, sem og fjóra fyrstu umferðar valrétti í nýliðavali deildarinnar.