Knattspyrnudeild KR hefur gengið frá samningi við norska miðjumanninn Olav Öby. Hann lék síðast með Fredrikstad í B-deild Noregs. Er hann þegar kominn með leikheimild hjá KR. Öby hefur allan ferilinn leikið í heimalandinu, þar sem hann hefur spilað…
Knattspyrnudeild KR hefur gengið frá samningi við norska miðjumanninn Olav Öby. Hann lék síðast með Fredrikstad í B-deild Noregs. Er hann þegar kominn með leikheimild hjá KR.
Öby hefur allan ferilinn leikið í heimalandinu, þar sem hann hefur spilað með liðum á borð við Strömmen, Kristiansund, Kongsvinger og Sarpsborg.
KR hafnaði í fjórða sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð með 38 stig.