Burt Bacharach
Burt Bacharach
Burt Bacharach er látinn, 94 ára að aldri. Honum hefur verið lýst sem einu mikilvægasta popptónskáldi 20. aldarinnar og starfaði hann með tónlistarfólki á borð við Dionne Warwick, Frank Sinatra, Barbru Streisand, Tom Jones, Arethu Franklin, Elvis Costello og Bítlana

Burt Bacharach er látinn, 94 ára að aldri. Honum hefur verið lýst sem einu mikilvægasta popptónskáldi 20. aldarinnar og starfaði hann með tónlistarfólki á borð við Dionne Warwick, Frank Sinatra, Barbru Streisand, Tom Jones, Arethu Franklin, Elvis Costello og Bítlana. Meðal frægustu laga hans eru slagarar á borð við „I Say A Little Prayer“, „Walk On By“ og „What The World Needs Now Is Love“. Á löngum og farsælum ferli rötuðu 73 laga hans á bandaríska topp 40-lagalistann og 52 lög á sambærilegan lista í Bretlandi.