Meistari Ólafur Karl varð Íslandsmeistari með Stjörnunni árið 2014.
Meistari Ólafur Karl varð Íslandsmeistari með Stjörnunni árið 2014. — Morgunblaðið/Kristinn
Knattspyrnumaðurinn Ólafur Karl Finsen er genginn til liðs við Fylki og mun hann leika með liðinu í Bestu deild karla í sumar. Ólafur, sem er þrítugur, lék með uppeldisfélagi sínu Stjörnunni á síðustu leiktíð en hann hefur einnig leikið með Val og FH á ferlinum

Knattspyrnumaðurinn Ólafur Karl Finsen er genginn til liðs við Fylki og mun hann leika með liðinu í Bestu deild karla í sumar. Ólafur, sem er þrítugur, lék með uppeldisfélagi sínu Stjörnunni á síðustu leiktíð en hann hefur einnig leikið með Val og FH á ferlinum. Alls á hann að baki 162 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað 34 mörk. Þá á hann að baki tvo A-landsleiki. Hann varð Íslandsmeistari með Stjörnunni árið 2014.