[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Söngkonan hefur oft skartað mjög kvenlegu útliti og verið í sama móti og aðrar söngkonur úti í heimi. Hún hefur skartað síðum ljósum lokkum og lagt áherslu á ákveðið útlit sem hefur þótt eftirsóknarvert í henni Hollywood

Söngkonan hefur oft skartað mjög kvenlegu útliti og verið í sama móti og aðrar söngkonur úti í heimi. Hún hefur skartað síðum ljósum lokkum og lagt áherslu á ákveðið útlit sem hefur þótt eftirsóknarvert í henni Hollywood. Nú kveður við annan tón. Lokkarnir eru horfnir og förðunin einkenndist af stælum. Ekki með nóg með það, heldur mætti hún í svörtum plastkjól sem minnti töluvert á fatasmekk fólks sem starfar við kynlífsiðnað.

Þegar förðun Cat er skoðuð kemur í ljós að það er margt áhugavert við hana. Andlitið er vel farðað en þó ekki skyggt óhóflega. Það var til dæmis búið að afmá augabrúnirnar og setja sterkan blautan augnpensill í kringum augun. Hann var eins og listaverk í andlitinu og rammaði það fallega inn. Til þess að leggja áherslu á útlitið var ljómapúður eða „highlighter“ settur í innri augnkrók. Birkir Már Hafberg förðunarmeistari segir að þetta útlit sé í algeru uppáhaldi hjá sér.

„Ég dýrka hvernig varaliturinn hennar tengist fullkomlega við litinn sem hún er með í innri augnkrók. Hver ætli verði næstur til að láta augabrúnirnar fjúka sem tískuyfirlýsingu?“ segir Birkir og hlær.