Guðrún Selma Sigurjónsdóttir
gudrunselma@mbl.is
Veturinn hefur verið ómögulegur fyrir flesta. Hvort sem fólk þarf að skafa bílinn, bíða eftir strætó eða reyna að stunda útivist í rauðri viðvörun þá má gera ráð fyrir að húðin kvarti ef réttu húðvörurnar eru ekki notaðar. Ef einhver er í vafa um hvað á að nota þá hefur Samkeppniseftirlitið tekið allan vafa af um að majónes eða kaldar sósur eiga ekki heima á húðinni. Serum er rétta svarið þegar kemur að því að næra húðina vel. Serum skal bera á húðina áður en gott rakakrem er borið á. Góð og virk efni í serum gefa húðinni raka og vinna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar.