Knattspyrnudeild Selfoss hefur gengið frá samningi við hina bandarísku Mallory Olsson. Hún kemur til Selfyssinga úr bandaríska háskólaboltanum. Mallory lék í fjögur ár með Central Florida-háskólanum
Knattspyrnudeild Selfoss hefur gengið frá samningi við hina bandarísku Mallory Olsson. Hún kemur til Selfyssinga úr bandaríska háskólaboltanum. Mallory lék í fjögur ár með Central Florida-háskólanum. Hún er þriðji bandaríski leikmaðurinn sem kemur til Selfoss fyrir komandi tímabil. Félagið hafði áður samið við Amöndu Leal og Grace Skopan. Selfoss endaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð.