Polly Samson
Polly Samson
Polly Samson, eiginkona gítarleikarans Davids Gilmours sem er einn liðsmanna hljómsveitarinnar Pink Floyd, er ómyrk í máli í nýlegri Twitter-færslu. Þar kallar hún fyrrverandi forsprakka sveitarinnar, Roger Waters, öllum illum nöfnum

Polly Samson, eiginkona gítarleikarans Davids Gilmours sem er einn liðsmanna hljómsveitarinnar Pink Floyd, er ómyrk í máli í nýlegri Twitter-færslu. Þar kallar hún fyrrverandi forsprakka sveitarinnar, Roger Waters, öllum illum nöfnum. Segir hún Waters m.a. gyðingahatara og stuðningsmann Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, skattsvikara og þjóf með mikilmennskubrjálæði. Tilefni þessa heiftúðugu ummæla virðist vera viðtal sem Waters veitti dagblaðinu Berliner Zeitung fyrr í mánuðinum en í því veltir hann fyrir sér hvort Pútín sé meiri „bófi“ en Joe Biden Bandaríkjaforseti og segir Rússlandsforseta stýra landi sínu af varkárni og í samvinnu við ríkisstjórnina. Þá sagði hann Ísraela fremja þjóðarmorð á Palestínumönnum og telja sig yfir þá hafna líkt og Bretar hafi talið sig æðri nýlenduþjóðum sínum. Hefur Waters áður líkt Ísraelsstjórn við nasista sem gyðingar hafa eðlilega tekið óstinnt upp.