Mike Portnoy er goðsögn heimi slagverksins.
Mike Portnoy er goðsögn heimi slagverksins. — AFP/Ethan Miller
Jákvæður Mike Portnoy, sem af mörgum er talinn einn besti trymbill málmsögunnar, gæti vel hugsað sér að koma á ný fram með sínum gömlu félögum í Dream Theater. Þetta upplýsti hann í hlaðvarpsþættinum The Heavy Hooks Show

Jákvæður Mike Portnoy, sem af mörgum er talinn einn besti trymbill málmsögunnar, gæti vel hugsað sér að koma á ný fram með sínum gömlu félögum í Dream Theater. Þetta upplýsti hann í hlaðvarpsþættinum The Heavy Hooks Show. Hann hváði þó þegar stjórnandinn notaði hugtakið „leiguliði“. „Ég er ekki viss um að ég myndi nota það hugtak í þessu sambandi um band sem ég stofnaði. En ef þú ert að spyrja hvort til álita komi að ég spili aftur með þessum gaurum þá er svarið já, að sjálfsögðu. Kæmu réttu aðstæðurnar upp.“