Ríkjandi Íslandsmeistarar Fram unnu auðveldan sigur á botnliði HK, 39:26, í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, í Úlfarsárdal í gærkvöldi. Staðan var 24:11 í hálfleik og eftirleikurinn því auðveldur fyrir Fram
Ríkjandi Íslandsmeistarar Fram unnu auðveldan sigur á botnliði HK, 39:26, í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, í Úlfarsárdal í gærkvöldi.
Staðan var 24:11 í hálfleik og eftirleikurinn því auðveldur fyrir Fram. Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði níu mörk fyrir Fram og Ingunn María Brynjarsdóttir varði 13 skot í marki liðsins.
Fram er eftir sigurinn áfram í 4. sæti deildarinnar, nú með 19 stig. HK er á botninum með 2 stig.