3 Framarinn Reynir Þór Stefánsson skoraði þrjú mörk gegn ÍR.
3 Framarinn Reynir Þór Stefánsson skoraði þrjú mörk gegn ÍR. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fram og Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni karla í handknattleik, Powerade-bikarnum, í gær með öruggum sigrum í átta liða úrslitum keppninnar. Framarar unnu ellefu marka sigur gegn ÍR, 34:23, í Skógarseli í Breiðholti á meðan…

Fram og Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni karla í handknattleik, Powerade-bikarnum, í gær með öruggum sigrum í átta liða úrslitum keppninnar.

Framarar unnu ellefu marka sigur gegn ÍR, 34:23, í Skógarseli í Breiðholti á meðan Hafnfirðingar unnu sjö marka sigur gegn Herði frá Ísafirði á Ásvöllum í Hafnarfirði, 37:30. Undanúrslitin fara fram í Laugardalshöll 16. mars og úrslitaleikurinn 18. mars.