Ásvellir Guðmundur mun leika heimaleiki sína á Ásvöllum.
Ásvellir Guðmundur mun leika heimaleiki sína á Ásvöllum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Handknattleiksmaðurinn Guðmundur Hólmar Helgason er að ganga í raðir Hauka og mun hann leika með liðinu frá og með næstu leiktíð. Vísir.is greinir frá að samningsviðræður Hauka og Guðmundar séu langt á veg komnar

Handknattleiksmaðurinn Guðmundur Hólmar Helgason er að ganga í raðir Hauka og mun hann leika með liðinu frá og með næstu leiktíð. Vísir.is greinir frá að samningsviðræður Hauka og Guðmundar séu langt á veg komnar. Leikmaðurinn hefur leikið með Selfossi frá sumrinu 2020, en hann gerði þriggja ára samning við félagið á sínum tíma og verður því samningslaus eftir leiktíðina. Guðmundur hefur skorað 66 mörk í 14 leikjum í vetur.