Prótín framtíðarinnar eru meðal annars engisprettur og lirfur mjölbjöllu. Þetta segir Pétur Guðmundsson eigandi Melabúðarinnar en þar má nú nálgast skordýr til átu. Hann mætti í Ísland vaknar í gær og leyfði Ásgeiri Páli og Kristínu Sif að bragða á…

Prótín framtíðarinnar eru meðal annars engisprettur og lirfur mjölbjöllu. Þetta segir Pétur Guðmundsson eigandi Melabúðarinnar en þar má nú nálgast skordýr til átu.

Hann mætti í Ísland vaknar í gær og leyfði Ásgeiri Páli og Kristínu Sif að bragða á góðgætinu sem hann segir að sé bæði frábært snarl eftir ræktina eða sem snakk fyrir eurovisionpartíið. Mismunandi bragðtegundir eru í boði en t.d. er hægt að fá lirfur með kanilbragði sem henta afar vel út á grautinn.