Nathália Baliana átti stórleik fyrir KA/Þór þegar liðið tók á móti Haukum í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, í KA heimilinu á Akureyri í 16. umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með fjögurra marka sigri KA/Þórs, 32:28, en Baliana gerði sér lítið fyrir og skoraði níu mörk í leiknum.
Akureyringar byrjuðu leikinn betur og náðu mest fimm marka forskoti, 13:8. Hafnfirðingum tókst að laga stöðuna undir lok fyrri hálfleiks og var staðan 19:16, KA/Þór í vil, í hálfleik.
KA/Þór náði mest níu marka forskoti í síðari hálfleik, 28:19, og Haukum tókst aldrei að ógna forskoti Akureyringa að ráði eftir það.
Ida Margrethe Hoberg skoraði 7 mörk fyrir KA/Þór og Rut Jónsdóttir skoraði fimm mörk. Matea Lonac varði 8 skot í marki Akureyringa.
Ragnheiður Ragnarsdóttir var markahæst hjá Haukum með sjö mörk og Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði sex. Þá átti Margrét Einarsdóttir góðan leik í marki Hauka og varði 12 skot.
KA/Þór er með 12 stig í fimmta sæti deildarinnar en Haukar eru í því sjötta með 10 stig.