Heim Daníel Freyr Andrésson skiptir í uppeldisfélagið í sumar.
Heim Daníel Freyr Andrésson skiptir í uppeldisfélagið í sumar. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild FH og gengur til liðs við uppeldisfélagið í sumar. Daníel Freyr leikur um þessar mundir með Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni

Markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild FH og gengur til liðs við uppeldisfélagið í sumar. Daníel Freyr leikur um þessar mundir með Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni. Sem atvinnumaður hefur Daníel einnig leikið með Guif og Ricoh í Svíþjóð auk þess að leika með SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni. Þá lék hann með Val á árunum 2019 til 2020 en hélt síðan aftur utan.